Fara á efnissvæði

Er viðburður í vændum?

Salurinn okkar í Grósku er tilvalinn fyrir ráðstefnur, fyrirlestra og aðra fjölbreytta viðburði. Fyrir utan salinn er opið rými sem hentar vel fyrir móttöku og veitingar við fallegan gróðurvegg.

Rými fyrir eftirminnilega viðburði

Fræðslustarf er órjúfanlegur þáttur í því skapandi samfélagi sem við hjá Grósku byggjum hugmyndafræði okkar á. Við hvetjum því alla sem vilja miðla áfram þekkingu til að nýta sér fyrirlestrasal Grósku og greiða veginn fyrir nýsköpun af öllu tagi að vaxa.

Fyrirlestrasalur

Fyrirlestrasalurinn okkar er tilvalinn fyrir ráðstefnur, fyrirlestra og fjölbreytta viðburði. Salurinn er 443m² með 8,0 metra lofthæð og rúmar 213 manns í sæti. Salurinn er með hallandi gólfi, föstum sætum með felliborðum og tengibrunni í gólfum og undir sætum fyrir tölvur og rafmagn. Salurinn er búinn öllum helsta búnaði sem þarf í viðburði. 

  • Tölva
  • Einfaldur streymisbúnaður
  • Skjávarpi og sýningartjald
  • Ræðupúlt ásamt púlthljóðnema
  • Fastar myndavélar
  • 4x þráðlausir hljóðnemar

Opið rými

Fyrir utan fyrirlestrasalinn er opið rými sem hentar vel fyrir móttöku og veitingar við fallegan gróðurvegg. 

Vert er að nefna að þetta er opið rými, svo ekki er hægt að koma í veg fyrir utanaðkomandi ferðir fólks um svæðið.

  • Rúmar um 2000 manns standandi
  • Veitingar frá Eiríksdóttir
  • Svört háborð fylgja

Veitingar

Eiríksdóttir státar af vönduðu veislueldhúsi þar sem matreiðslumeistarar galdra fram ljúffengar og fjölbreyttar veitingar. Alla veitingaþjónustu skal panta í gegnum eiriksdottir@brasserie.is.

Vöruúrval og verð má finna hér

Nánari upplýsingar um fyrirlestrasal

Fast hljóðkerfi í sal, stýribúnaður fyrir hljóðkerfi í púlti og 4 þráðlausir hljóðnemar.

Umsjónarmaður Grósku stillir lýsingu. Ef óskað er eftir hreyfiljósum og viðveru ljósamanns þarf að greiða aukalega fyrir það.

Ef þörf er á aukabúnaði í salinn þá verður hann að koma frá Exton. Greitt er aukalega fyrir hann. Ef óskað er eftir tæknimanni á staðnum þarf að greiða aukalega fyrir hann.

Starfsmaður Grósku sér um að færa púltið til og frá og aftengja það.
Búnaður í púlti:
• Stýribúnaður fyrir hljóð og mynd.
• Hljóð og myndtengi fyrir fartölvu.
• Ethernet/Wifi tenging.

Í salnum er skjávarpi. Hægt er að varpa beint á dökkan vegg eða hvítt tjald sem er 4x6 m að stærð. 

Við sjáum um að bóka tæknimann á viðburðinn, sem er alltaf einn maður að lágmarki.

Lágmarksgjald er tekið fyrir yfirsetu tæknimanns, per klst.

Alla auka tækniaðstoð og búnað þarf að fá tilboð í.

Ef til auka búnaðar kemur, s.s. hljóðkerfi, eða streymi, þá komum við þér í samband við Exton.

  • Heilsdagsleiga er frá kl. 8:00-17:00.
  • Hálfsdagsleiga er leiga í allt að 5 klukkustundir á bilinu 8:00-17:00.
  • Eftir kl 18:00 bætist 10% aukagjald við salarleigu.
  • Sé óskað eftir breytingu á sal eða rými bætist 40% aukagjald við salarleigu fyrir hverja breytingu.
  • Fyrir uppsetningu og niðurtekt reiknast hálf salarleiga. Gert er ráð fyrir að slík vinna taki að hámarki einn dag, fyrir og eftir viðburð.
  • Innifalið í heilsdagssalarleigu er 4 tíma fundarhald með verkefnastjóra.
  • Innifalið í hálfsdagssalarleigu er 2 tíma fundarhald með verkefnastjóra.
  • Innifalið í salarleigu er sýningartjald, skjávarpi, púlt, hljóðnemi í púlti ásamt hljóðkerfi fyrir talað mál.
  • Greiða þarf aukalega fyrir allan tæknibúnað umfram það sem
    innifalið er í salarleigu.
  • Ef viðburður er umfangsmikill þarf að greiða fyrir auka þrif.
  • Greiða þarf fyrir yfirsetu tæknimanns sem er ávallt einn maður að lágmarki

Miðað er við þær dagsetningar þegar viðburðurinn er afbókaður og þann
dag sem viðburðurinn átti að eiga sér stað.

Ef afbókað er:

  • 91 degi eða meira fyrir viðburð skal greiða 10% af leigunni
  • 61 til 90 dögum fyrir viðburð skal greiða 30% af leigunni
  • 31 til 60 dögum fyrir viðburð skal greiða 50% af leigunni
  • 30 dögum eða minna fyrir viðburð skal greiða 100% af leigunni

Verðskrá

Heill virkur dagur 340.000 kr. m. vsk
Hálfur virkur dagur: 190.000 kr. m. vsk
Heill dagur um helgi 370.000 kr. m. vsk
Hálfur dagur um helgi: 225.000 kr. m. vsk
Aukagjald pr. klukkustund: 37.000 kr. m vsk

Heill virkur dagur 250.000 kr. m. vsk
Hálfur virkur dagur: 186.000 kr. m. vsk
Heill dagur um helgi 285.000 kr. m. vsk
Hálfur dagur um helgi: 220.000 kr. m. vsk
Ef leigist með fyrirlestrasal þá fæst opna rýmið á hagstæðri kjörum.

Hefur þú áhuga á að halda viðburð í Grósku?

Sendu okkur skilaboð með öllum helstu spurningum og við höfum samband eins fljótt og auðið er.

Hvað hefur þú í huga?

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.