“Það er rosalega góð tilfinning að vita að maður getur stækkað og minnkað með litlum fyrirvara og litlum kostnaði . “
Kristín Eva Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Gagarín
Gróska býður fyrirtækjum og einstaklingum upp á mikinn sveigjanleika varðandi vinnulausnir og þjónustuframboð. Ef þú ert með hugmynd sem þarf rými til að vaxa er Gróska staðurinn fyrir þig. Hjá okkur færðu tækifæri til að skapa tengslanet við aðra frumkvöðla og bera saman bækur við fólk á þínu sviði.
Í Grósku verða hugmyndir að tækifærum og fyrirtæki fá svigrúm til að vaxa og dafna.
Gróska býður upp á fjölbreytta og nútímalega aðstöðu sem styður við vinnudaginn frá upphafi til enda.